Þrjátíu ár síðan Krossnes frá Grundarfirði fórst á Halamiðum
Sögur af landi - En podkast av RÚV
Kategorier:
Við rifjum upp sjóslysið þegar Krossnes SH-308 frá Grundarfirði fórst á Halamiðum en þann 23. febrúar síðastliðinn voru þrjátíu ár síðan togarinn fórst. Níu menn komust lífs af en þrír fórust í slysinu. Hafsteinn Garðarsson var skipstjóri á Krossnesi þegar skipið fórst. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir settist niður með Hafsteini, sem starfar nú sem hafnarstjóri í Grundarfirði, sem rifjaði upp þessa örlagaríku ferð. Efni í þáttinn vann Elsa María Guðlaugs Drífudóttir. Umsjón: Halla Ólafsdóttir