Nóbelsverðlaunahafinn umdeildi James Watson, Rosalind Franklin og COP30

Samfélagið - En podkast av RÚV

Podcast artwork

Kategorier:

Í dag köfum við í erfðafræði og vísindasagnfræði – nóbelsverðlaunahafinn James Watson, sem hlaut nóbelinn árið 1962, ásamt þeim Francis Crick og Maurice Wilkins, fyrir uppgötvanir sem tengdust uppbyggingu DNA – lést á dögunum. Hann var síðasti eftirlifandi meðlimur þessa þríeykis. En ferill þessa merkilega manns er áhugaverður og gríðarlega umdeildur – í dag setjumst við niður með Arnari Pálssyni erfðafræðingi við Háskóla Íslands til að setja feril hans í samhengi og átta okkur á hvað hann getur sagt okkur um stöðu erfðafræðinnar og jafnvel vísindanna í nútímasamfélagi. Við fáum líka pistil frá Stefáni Gíslasyni, föstum pistlahöfundi Samfélagsins. Í dag veltir hann fyrir sér COP30-loftslagsráðstefnunni, sem – eins og hlustendur Samfélagsins vita vel – fer fram þessa dagana í Belem í Brasilíu. Tónlist úr þættinum: Marling, Laura - Patterns. Stereolab - The free design. Nick Drake - Hazey Jane I