Úkraína, Bretland, baráttudagur og kjarasamningar

Morgunútvarpið - En podkast av RÚV

Óskar Hallgrímsson, ljósmyndari búsettur í Kyiv, var hjá okkur í upphafi þáttar hér í hljóðveri. Við ræddum stöðuna í stríðinu í Úkraínu og daglegt líf þar í landi. Árið 2024 er kosningaár í Bretlandi. Til stendur að ræða framtíð breskra stjórnvalda á opnum fundi á vegum Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands á eftir. Ólafur Harðarson prófessor í Stjórnmalafræði leiðir fundinn en kíkti fyrst til okkar í spjall um málið. Í dag er Alþjóðlegur baráttudagur kvenna og Sara McMahon hjá UN women kom til okkar að ræða stöðuna. Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði, rýndi með okkur í nýja kjarasamninga sem undirritaður voru í gær og áhrif aðgerðapakka stjórnvalda. Við fórum síðan yfir fréttir vikunnar hér í lok þáttar eins og alltaf á föstudögum, í þetta skiptið með fjölmiðlafólkinu Samúel Karli Ólasyni á Vísi og Hólmfríði Maríu Ragnhildardóttur á Morgunblaðinu. Tónlist: NÝDÖNSK - Klæddu Þig. Blondie - Atomic. DAVID KUSHNER - Daylight. Beyoncé - Texas Hold 'Em (Explicit). VALDIMAR GUÐMUNDSSON & ÞORSTEINN EINARSSON - Ameríka (Hljómskálinn). Miley Cyrus - Flowers. Una Torfadóttir - Í löngu máli. PULP - Babies.