Ölfus, fótaaðgerðafræði, þjónusta við eldra fólk, grindvísk börn, læknisleysi og kjaramál

Morgunútvarpið - En podkast av RÚV

Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi var á línunni en við forvitnuðumst um uppbyggingu á svæðinu, forgang Grindvíkinga að byggingarlóðum og sitthvað fleira. Við kynntum okkur svo fótaaðgerðafræði, en nýlokið er heilmikilli alþjóðlegri ráðstefnu hér á landi um þau mál. Fótaaðgerðafræðingar á Íslandi vilja fá nám sitt á háskólastig, en það hefur hingað til verið kennt á framhaldsskólastigi án ríkisstyrkja og kostar á þriðju milljón króna. Þær Jóna Björg Ólafsdóttir fótaaðgerðafræðingur og Anna Vilborg Sölmundardóttir formaður félags íslenskra fótaaðgerðafræðinga komu til okkar og sögðu okkur meira af stöðu mála. Mörg eru í þeirri stöðu að ofan á fyrstu, aðra og þriðju vaktina bætist enn ein vaktin: umönnun aldraðra foreldra. Sett hefur verin á laggirnar upplýsingagátt sem á að einfalda eldra fólki og aðstandendum þeirra örlítið lífið. Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, sérfræðingur í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og starfsmaður Gott að eldast sagði okkur betur frá því. Í það minnsta 250 grindvísk börn hafa boðað komu sína á morgunfund í Laugardalshöllinni á eftir. Umboðsmaður barna hefur boðað þau á fundinn til að fara yfir þeirra mál. Salvör Nordal, umboðsmaður barna kom til okkar ásamt einu þessara barna, Jóni Gísla Eggertssyni. Grundfirðingar eru ekki sáttir við stöðu læknisþjónustu í bænum og hafa sett af stað undirskriftarsöfnun hvað málið varðar. Við hringdum vestur í Grundarfjörð og heyrðum í Elínu Hróðnýju Ottósdóttur sem heldur utan um undirskriftarsöfnunina. Stærstu verkalýðsfélögin innan ASÍ og Samtök atvinnulífsins munu líklega skrifa undir nýjan kjarasamning í dag. VR og iðnaðarmenn eiga ekki aðild að þessum samningi en fundað verður með þeim á eftir. Þá hefur samninganefnd VR samþykkt atkvæðagreiðslu um verkfall meðal félagsfólks sem starfar í farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR ræddi við okkur. Tónlist: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Lítill drengur. James Taylor - Sweet baby James. Hafdís Huld - Tomoko. Tate McRae - Greedy. Dina Ögon - Mormor. Egó - Í hjarta mér. Peter Gabriel og Kate Bush - Don't give up. Kasper Björke og Sísí Ey og Systur - Conversations. GDRN - Vorið. Nýdönsk - Á plánetunni jörð.