Háskóladagur, hljóðvist barna, húsnæðismál Grindvíkinga, hlaupárs afmæli, Mottumars og hvernig verða börnin til

Morgunútvarpið - En podkast av RÚV

Framboð háskólanáms á Íslandi er fjölbreytt og við heyrðum meira af því þegar Erla Gunnarsdóttir verkefnastjóri háskóladagsins kom til okkar, en háskóladagurinn er samstarf allra háskólanna og hefur verið við lýði í áratugi. Kristján Sverrisson forstjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar kom til okkar og ræddi hljóðvist og heyrnarvernd barna, en málþing um efnið fer fram á morgun. Grindvíkingurinn Hilmar Freyr Gunnarsson ræddi við okkur um stöðu Grindvíkinga í dag og frumvarp er varðar húsnæðisuppkaup. Hann setur spurningamerki við þó nokkur atriði þar, segir of margt óljóst og allt benda til þess að fjöldi fólks geti tapað á því að fara þá leið að selja ríkinu eignir sínar. Hvernig varð ég til er titill bókar Andreu Bjartar Ólafsdóttur þar sem leitast er við að aðstoða fjölskyldur við að upplýsa börn um hvernig þau urðu til, með áherslu á fólk sem fær aðstoð frá egg- eða sæðisgjafa. Andrea Björt kíkti til okkar í morgunkaffi og sagði okkur meira. Afmælisbarnið Magnús Leifur Sveinsson kom til okkar en hann fagnar 11. afmælisdegi sínum í dag en er samt 44 ára gamall, enda hlaupársdagur í dag. Mottumars er mættur og hann er meira að segja byrjaður í dag þó enn sé febrúar!Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins og þær Gréta Hlöðversdóttir og Snæfríð Þorsteins, sem eru að baki hönnun Mottumarssokkanna í ár sögðu okkur allt um mottumars í ár. Tónlist: Leaves - Breathe. America - Ventura highway. Bogomil Font og Greiningardeildin - Sjóddu frekar egg. Beyoncé - Texas Hold em. Iceguys - Rúlletta. George Michael - Fast love. Friðrik Dór - Aftur ung (dansaðu við mig). The Beatles - Please please me.