Grænland, skautun, Kate, sirkús og mygla

Morgunútvarpið - En podkast av RÚV

Það eru kannski ekki margir sem geta raunverulega sagst hafa látið sig hverfa af landi brott með sirkusnum en Margrét Erla Maack getur það sannarlega. Hún fer brátt að ljúka sirkusferðalagi sínu en var á línunni frá Kaupmannahöfn í byrjun þáttar. Inga Dóra Guðmundsdóttir var á línunni frá Grænlandi eftir fréttayfirlitið hálf átta en við fengum í gær fréttir af því að 143 grænlenskar konur hafi nú stefnt danska ríkinu vegna svokallaðrar lykkjuherferðar. Við ræddum síðan skautun við Finn Ulf Dellsén, prófessor í heimspeki, sem nokkuð hefur fjallað um þau mál undanfarið. Við spyrjum hvort skautun viðhorfa sé óhjákvæmileg í nútíma samfélagi. Mikið hefur verið rætt um fjarveru Kate Middleton, Katrínar prins­essunnar af Wales. Hún hafði ekki sést frá áramótum, allt þar til dró til tíðinda í gær þegar að hún sást í framsætinu á bíl. Ótal kenningar eru uppi um hvað gæti útskýrt hvers vegna prinsessan hvarf sviðsljósinu í svo langan tíma. Anna Lilja Þórisdóttir fréttamaður og hirðspegúlant kom til okkar í spjall um málið. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fyrirtæki og tryggingafélag til að greiða konu sem þar vann skaðabætur vegna heilsutjóns sem hún varð fyrir vegna mygli, en það er líklega í fyrsta skipti sem skaðabótaábyrgð er viðurkennd í máli sem þessu. Við ræddum við Björgvin Þórðarson, lögmann hjá Bótarétti, sem flutti málið fyrir hönd konunnar. Sævar Helgi Bragason, vísindasérfræðingur Morgunútvarpsins, var hjá okkur í lok þáttar, venju samkvæmt.